Greining lungnakrabbameins og ákvörðun vefjagerðar
Til þess að greina lungnakrabbamein er bæði beitt myndrannsóknum og berkjuspeglun. Oftast er byrjað á því að fá röntgenmynd af lungum.
Til þess að greina lungnakrabbamein er bæði beitt myndrannsóknum og berkjuspeglun. Oftast er byrjað á því að fá röntgenmynd af lungum. Þar birtist krabbameinið oftast sem hnútur eða þétting í lunganu. Síðan er gerð tölvusneiðmyndarannsókn (TS) á lungum og brjóstholi sem er mun nákvæmari rannsókn en hefðbundin röntgenmynd af lungum. Þar sjást betur útlínur krabbameinsins og nákvæm staðsetning þess í lunganu.

Til þess að greina lungnakrabbamein og ákveða meðferð er mikilvægt að ná sýni úr æxlinu til vefjarannsóknar. Oftast er það gert með berkjuspeglun en stundum er það ekki hægt, t.d. ef æxlið er staðsett utarlega í lunganu. Þá er reynd ástunga á hnútinn og er þá notast við tölvusneiðmyndir til að auðvelda staðsetningu þess. Við stunguna getur komið gat á yfirborð lungans og loft hnútur hnútur 13 lekið út í fleiðruholið. Við það fellur lungað saman og kallast það loftbrjóst (e. pneumothorax). Loftbrjóst er oftast hættulítið, en stundum þarf meðferð með brjóstholsslöngu í nokkra daga